Púlsinn

Teikning af tveimur ráðgjöfum í hægindastólum.

Púlsinn - bráða- og viðbragðsteymi er fyrir börn á aldrinum 10–18 ára sem beita eða hóta líkamlegu ofbeldi og fjölskyldur þeirra.

Púlsinn er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu.

Púlsinn - logo

Bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna

Skóli, félagsmiðstöð, félags- og barnaverndarþjónusta, lögregla og aðrir sem veita börnum þjónustu geta virkjað Púlsinn.

Hann starfar tímabundið í máli hvers barns, allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur, í samstarfi við lögheimilissveitarfélag.

Markmið Púlsins

Púlsinn hefur það markmið að bregðast við hótunum og ofbeldi sem eru birtingarmynd áhættuhegðunar í félagslegu samhengi. Hótunum eða ofbeldi þarf að hafa verið beitt af ásetningi eða til varnar gegn yfirstandandi ógn til að Púlsinn komi að málum. Púlsinn bregst hratt við og leitast við að afstýra hættu á frekara ofbeldi.

Þjónusta teymisins er sniðin að þörfum hvers barns fyrir sig. Í Púlsinum starfa einstaklingsráðgjafar, sálfræðingar og félagsráðgjafar sem veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Þjónustan getur meðal annars falið í sér uppeldisráðgjöf inn á heimili, stuðning á skólatíma, tímabundna þjónustu utan skóla á skólatíma, einstaklingsstuðning og sálfræðiþjónustu.

Ósk um aðkomu Púlsins

Þegar upp koma atvik meðal barna á aldrinum 10-18 ára með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ofbeldi er hótað eða því beitt af ásetningi, eru þjónustuveitendur hvattir til að hafa samband við Púlsinn í síma eða með tölvupósti til að fá ráðgjöf/speglun án persónugreinanlegra upplýsinga um mögulega aðkomu Púlsins.

Undir liðnum tengd skjöl hér neðar á síðunni geta þjónustuveitendur nálgast flæðirit þar sem hægt er að kynna sér hvernig óskað er eftir aðkomu Púlsins.

Upplýsingar um Púlsinn fyrir þjónustuveitendur:

Netfang: pulsinn@reykjavik.is
Símanúmer: 664 9800

 

Neðar á síðunni geta þjónustuveitendur að auki nálgast kynningarefni fyrir forsjáraðila og beiðni til að óska eftir þjónustu Púlsins á íslensku og ensku.

Þjónustuveitendur senda undirritaðar beiðnir til Púlsins í gegnum Signet-gátt Púlsins.