Barnamenningarhátíð - Um hátíðina
Leiðarljós
Leiðarljós hátíðarinnar eru gæði, margbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi að menningu barna, með börnum og fyrir börn.
Um Barnamenningarhátíð
Barnamenningarhátíð í Reykjavík er haldin í apríl ár hvert.
Vettvangur hátíðarinnar er borgin öll og fara fjölbreyttir viðburðir fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Frítt er inn á alla viðburði.
Barnamenningarhátíð er ein af megin þátttökuhátíðum borgarinnar. Hátíðin er skipulögð af viðburðardeild borgarinnar og verkefnastjóra barnamenningar.
Verkefnastjórar:
- Björg Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða
- Aðalheiður Sveinsdóttir, verkefnastjóri viðburða
- Daníel Óskar Jóhannesson, verkefnastjóri viðburða
- Harpa Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri Barnamenningar
- Aino Freyja Jarvela, verkefnastjóri
Fulltrúaráð Barnamenningarhátíðar 2026:
Fulltrúar Menningar- og íþróttasviðs:
- Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Borgabókasafni
- Jón Páll Björnsson, verkefnastjóri fræðslu hjá Borgarsögusafni
- Ariana Katrín Katrínardóttir, verkefnastjóri fræðslu hjá Listasafni Reykjavíkur
Fulltrúar Skóla- og frístundasviðs:
- Svandís Egilsdóttirr, fagstjóri á grunnskólaskrifstofu SFS f.h. grunnskóla
- Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri Tjarnarinnar f.h. frístundamiðstöðva
- Erna Agnes Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri , f.h. leikskóla
Fulltrúar Reykjavíkurráðs ungmenna:
- Snæ Humadóttir
- Magnea Þórey
Viðburðateymi Reykjavíkurborgar
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11 | 101 Reykjavík | S: 411 6000
barnamenningarhatid@reykjavik.is | Facebook
Fyrir fjölmiðla
Við aðstoðum fjölmiðla sem vilja fjalla um hátíðina og getum bent á viðburði sem gætu hentað hverjum miðli fyrir sig. Fyrir frekari upplýsingar, myndefni og viðtöl hafið samband við Huldu Gunnarsdóttur, hulda.gunnars@reykjavik.is