Barnamenningarhátíð 2027

Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 19. - 25. apríl næstkomandi og er vettvangur hátíðarinnar borgin öll. Fjölbreyttir viðburðir fara fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra. 
 
Frítt er inn á alla viðburði.

Ertu með hugmynd af viðburði fyrir barnamenningarhátíð?

Barnamenningarhátíð er þátttökuhátíð þar sem menning með börnum, fyrir börn er í fyrirrúmi. Hátíðin rúmar allar listgreinar og er flestum velkomið að taka þátt.
 
Hægt er að óska eftir að fá að taka þátt með því að senda póst á barnamenningarhatid@reykjavik.is.
 
Allir viðburðir skulu fara fram á meðan hátíðin stendur, í Reykjavík og vera þátttakendum að kostnaðarlausu. 
 
Opnað verður fyrir viðburðapott Barnamenningarhátíðar í nóvember. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að sækja um fjárframlag til að skipuleggja viðburði sem fara eiga fram á hátíðinni. 
 

Lag Barnamenningarhátíðar 

Á hverju ári er samið nýtt lag Barnamenningarhátíðar. Lagið er samvinna tónlistarfólks og allra grunnskólabarna í 4. bekk í Reykjavík.

Lag Barnamenningarhátíðar 2026 er samið af í bræðrunum Hálfdáni Helga og Matthíasi Davíð í VÆB.

Við erum gífurlega þakklát fyrir að þeir tóku þátt í þessu verkefni með okkur.

Þema Barnamenningarhátíðar árið 2026 er samkennd og samfélag og fengu nemendur í 4. bekk í borginni það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í samkennd og samfélagi. Texti lagsins er byggður á svörum barnanna.

  • Útsetning og höfundar lags: VÆB
  • Kvikmyndataka: Antonía Lárusdóttir 
  • Leikstjórn: Erla Stefánsdóttir 

Samin hafa verið lög fyrir Barnamenningarhátíð frá árinu 2015 og er hægt að skoða myndbönd af lögunum og fleira efni á Youtube Barnamenningarhátíðar.