Umbreyting borgar - verkefnasögur

Teikning sem lýsir notendamiðaðri þjónustu.

Undanfarin ár hefur Reykjavík markvisst stigið stór skref á stafrænni vegferð sinni. Markmiðið er að skapa borg þar sem „stafrænt bara er”. Borg þar sem stafræn nálgun er sjálfsögð og innbyggð í alla þjónustu borgarinnar.

Hér er hægt að skoða brot af því besta frá síðustu misserum. Verkefnin eru unnin í góðu samstarfi fjölda hagaðila, íbúa og starfsfólks borgarinnar. Þau eiga það sameiginlegt að tengjast þjónustu með einum eða öðrum hætti ásamt því að stuðla að nýsköpun og notendamiðaðri hugsun.

Þjónustuborgin Reykjavík

Markmið Reykjavíkurborgar er að veita framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum. Með því að endurhugsa ferla og nýta stafrænar lausnir þar sem þær eiga við getum við leyst úr málum íbúa og starfsfólks á skjótan og öruggan hátt.

Verkefnin á þessari síðu eru ólík, en eiga það sameiginlegt að einfalda þjónustu, bæta aðgengi að upplýsingum og gera samskipti skilvirkari.

Teikning af fólki að veita og þiggja þjónustu.

Hanna – stafrænt hönnunarkerfi

Stafræn þjónusta Reykjavíkurborgar er fjölbreytt, en upplifun notenda á ekki að ráðast af því hvaða kerfi eða þjónustu þeir eru að nota. Til að auðvelda teymum að byggja stafrænar vörur með samræmdum hætti varð hönnunarkerfið Hanna til.

Hanna inniheldur meðal annars letur, liti, myndastíl, rödd og endurnýtanlegar hönnunareiningar með kóða. Þannig geta teymi nýtt það sem þegar hefur verið hannað og prófað í stað þess að byrja frá grunni í hvert sinn.

Með sameiginlegu hönnunarkerfi verður auðveldara að bregðast hraðar við áskorunum í stafrænum heimi, tryggja samfellu í notendaupplifun og þjónusta borgarbúa enn betur.

Teikning af Hönnu dansandi.
Fleiri verkefnasögur
"Verk í vinnslu" er blogg vettvangur þar sem áhugasamir íbúar geta fengið innsýn í verkefni sem verið er að vinna að í teymi þjónustuhönnunar. Endilega skoðið!
Reykjavik.is er aðalvefur borgarinnar sem hefur það markmið að veita alhliða þjónustu og vera upplýsingavefur allra borgarbúa.
Börn byrja í grunnskóla árið sem þau verða sex ára. Þau fá úthlutað plássi í sínum hverfisskóla og forsjáraðili þarf að staðfesta innritun rafrænt.
Öll uppbyggingarsvæði borgarinnar eru nú aðgengileg á korti. Með því að smella á svæði koma upplýsingar um stöðu verkefnis, fjölda íbúða, framkvæmdaraðila, áætluð verklok og hönnuð verkefnis.
Það er flókið að byggja hús. Ef þú ætlar að breyta eða byggja húsnæði í Reykjavík þarftu yfirleitt að sækja um byggingarleyfi, sem þangað til í desember 2022 fór alfarið fram á pappír.
Daglega eru undirrituð hundruðir skjala hjá Reykjavíkurborg með tilheyrandi pappírssóun og tímaeyðslu.