Skólinn

Teikning af fjórum unglingum.

Korpuskóli er sérskóli á unglingastigi fyrir nemendur með miðlungs-, alvarlega- og djúpa þroskahömlun með eða án viðbótarfatlana.

Nemendur eru sjálfkrafa skráðir í Korpuskóla þegar þeir ljúka 7. bekk í Klettaskóla Suðurhlíð 9.

Stjórnendur

 


 

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Korpuskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

  • Starfsáætlun 2026-2027

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Korpuskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

Skólanámskrá 2026-2027

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Börn að borða

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.

 

Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi.

 

Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af Fjólu á leið í skólann ásamt fleiri nemendum og foreldrum

Mat á skólastarfi

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.