Ráðgjafarskóli
Sólborg er sá leikskóli, sem hefur sérhæft sig í að mæta þörfum heyrnarlausra og heyrnarskertra barna. Heyrnar- og talmeinastöð Íslands kynna þessa ráðgjöf fyrir foreldrum barnanna þegar heyrnarskerðing uppgötvast.
Markmið með ráðgjöfinni
Að veita leikskólastarfsfólki ráðgjöf varðandi heyrnarskerðingu, hvað þarf að taka tillit til í umhverfi barnanna, áhersluþætti í námi og kennslu en sérstaklega er horft til félagslegrar stöðu og hlutdeildar í leikskólastarfinu. Ráðgjafarferlið miðast við þarfir hvers og eins.
- Almenn ráðgjöf veitt um heyrnarskerðingu og áhrif þess að fá heyrnartæki
- Upplýsingar um það, sem leikskólinn þarf að huga að í leikskólastarfinu varðandi námsumhverfi, hljóðvist, samskipti og hlutdeild barnsins í leikskólastarfinu
- Heyrnarskertir nemendur og táknmál
- Ráðgjöf varðandi CODA börn
Sérkennslustjóri er Lilja Þorsteinsdóttir
Ráðgjöf sem boðið er upp á:
- Ráðgjafi kemur eða hefur símaráðgjöf á leikskóla barnsins. Ráðgjöfin er veitt samkvæmt gjaldskrá, 25.000 kr., ásamt akstursgjaldi vegna aksturs opinberra starfsmanna á eigin bifreiðum.
-
Ráðgjöf sem fer fram í leikskólanum Sólborg. Ráðgjöfin er veitt samkvæmt gjaldskrá: 12.500 kr.
Beiðni um ráðgjöf ætti að berast frá leikskóla barnsins
Beiðni um ráðgjöf er send á netfang Sólborgar solborg@rvkskolar.is á þar til gerðu umsóknarblaði