Hádegisverður í félagsmiðstöðvum
Það er gefandi að setjast niður í hádeginu í notalegu umhverfi og fá sér góða og næringarríka máltíð. Í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs er hægt að kaupa heitan hádegisverð alla virka daga klukkan 11:30–12:30.
Hvað er í matinn?
Þarf ég að skrá mig í hádegisverð?
Fólk sem vill borða á félagsmiðstöðvum þarf að skrá sig í hádegisverð á staðnum eða í síma, fyrir klukkan 13:00 daginn áður.
Hér fyrir neðan getur þú fundið símanúmer fyrir félagsmiðstöð til að skrá þig:
- Aflagrandi 40: 411 2707
- Árskógar 4: 411 2600
- Bólstaðarhlíð 43: 411 2660
- Borgir, Spönginni 43: 411 9368
- Dalbraut 21-27: 411 2500
- Dalbraut 18-20: 411 2529
- Furugerði 1: 411 2744
- Gerðuberg 3-5: 771 1479
- Hraunbær 105: 411 2730
- Hvassaleiti 56-58: 411 2800
- Hæðargarður 31: 411 2790
- Langahlíð 3: 411 2550
- Norðurbrún 1: 411 2777
- Seljahlíð, Hjallaseli 55: 540 2400
- Sléttan Sléttuvegi 25: 585 3210
- Vitatorg, Lindargötu 59: 822 3088
Hvað kostar hádegisverður í félagsmiðstöðvum?
- Hádegisverður (ellilífeyrisþegar og öryrkjar): 1.900 kr.
- Hádegisverður með gjaldlækkun (ellilífeyrisþegar og öryrkjar): 1.500 kr.
- Almennt verð: 2.378 kr.
Hvernig sæki ég um gjaldlækkun?
- Þú sækir um gjaldlækkun inn á mínum síðum.
- Þú þarft að vera með tekjur innan framfærsluviðmiða Tryggingastofnunar
- Hámarkstekjur fyrir undanþágu eru:
- 486.076 kr á mánuði ( ef þú býrð ein/einn/eitt)
- 416.950 kr (ef þú býrð með öðrum) .
- Einnig er hægt að fylla út eyðublað til umsóknar um lækkun á gjaldi og senda á maturinnheim@reykjavik.is.
Ertu með ábendingu um matarþjónustuna?
Þú getur sent ábendingu í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar, á netfangið maturinnheim@reykjavik.is eða haft samband við Þjónustuver í síma 411 1111.
Ábendingum er varða gæði matarins er komið áfram til framleiðslueldhúss Krydd og kavíar ehf. sem sér um matseldina.