Gjaldskrá veitinga og fæðis 2026
1. grein
| Veitingar og fæði | Verð kr. |
|---|---|
| Mjólkurglas | 75 |
| Kaffi og te | 235 |
| Gos, malt og pilsner | 335 |
| Kaffimeðlæti | 325 |
| Hádegismatur – almennt verð fyrir lífeyrisþega | 1.900 |
| Hádegismatur – verð fyrir þá sem eru undir tekjuviðmiðum | 1.500 |
| Hádegismatur – almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega | 2.378 |
| Heimsendur matur | 1.900 |
| Heimsendur matur með gjaldlækkun | 1.500 |
| Kvöldverður | 520 |
| Morgunverður | 245 |
2. gr.
Lækkun á greiðslu.
Heimilt er að sækja um lækkun á greiðslu fyrir hádegismat ef umsækjandi fær aðeins tekjur samkvæmt framfærsluviðmiði Tryggingastofnunar ríkisins eða þar undir.
3. gr.
Gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var á fundi velferðarráðs þann 13. ágúst 2026 og á fundi borgarráðs þann 20. ágúst 2026, er sett á grundvelli 20. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, sbr. 2. og 4. tl. 13. gr. sömu laga, og 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi þann 1. september 2026 og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis.