Umhverfis- og skipulagsráð - Fundur nr. 385

Umhverfis- og skipulagsráð

Ár 2026, miðvikudaginn 26. ágúst, kl. 9:04 var haldinn 385. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð, Hofi. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Guðný María Jóhannsdóttir, Ari Edwald, Friðjón R. Friðjónsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Pétur Hafliði Marteinsson og áheyrnarfulltrúarnir Líf Magneudóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar varðandi fjarfundaheimild: Magnea Gná Jóhannsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Brynjar Þór Jónasson, Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Sigurjóna Guðnadóttir og Elísabet Dröfn Erlingsdóttir.
Fundarritari var Glóey Helgudóttur Finnsdóttir.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer í trúnaði kynning á mögulegri útfærslu á styttingu gjaldskyldu hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkur.
    Frestað MSS26060100

  2. Fram fer í trúnaði kynning á niðurstöðum könnunar vegna samgangna og úrgangsmála, unnin á vegum styrktarverkefnis (Pilot City Project) sem tengist Loftslagsborgarsamningi. Einnig eru lögð fram samantekt að rannsóknarskýrslu. Trúnaður ríkir um samantekt að skýrslu þar til umbrot er fullunnið.

    Johanna Raudsepp, Ásdís Karen Waltersdóttir, Hrönn Hrafnsdóttir og Friðrik Klingbeil Gunnarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    -     Kl. 9:59 víkur Gunnar Hersveinn Sigursteinsson af fundi USK24080258

    Bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók.

  3. Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. ágúst 2026 að reglum um úthlutun nágrannavörsluskilta.
    Samþykkt. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. 
    Vísað til borgarráðs. USK26080286

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihlutinn fagnar því að nú séu settar skýrar reglur um úthlutun nágrannavörsluskilta og þannig auðveldað fyrir íbúa að koma á virkri nágrannavörslu í sinni götu eða hverfi. Með einföldu og aðgengilegu umsóknarferli og skýrri verkaskiptingu er stigið mikilvægt skref í þá átt að gera fleiri íbúum kleift að taka höndum saman um öryggi og góðan nágrannaanda í sínu nærumhverfi.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hugmyndina um nágrannavörslu og reglur um nágrannavörsluskilti enda er um gott verkefni að ræða sem borgin hefur unnið að í samvinnu við íbúa frá 2006. Samfylkingin leggur áherslu á að umræða um öryggismál byggist á staðreyndum og yfirvegun en ekki hræðsluáróðri. Umræða um nýlega innbrota bylgju hefur skort upplýsta tölfræði og samhengi við fyrri ár eða aðrar borgir. Lögreglan staðfestir að innbrotin voru unnin af fáum og þekktum einstaklingum í alvarlegri félagslegri neyð — vanda sem dýpkar vegna skorts á úrræðum, plássleysi í fangelsum og skerðingu á nærþjónustu líkt og lokun Kaffistofu Samhjálpar. Nágrannavarsla má aldrei verða að óttastjórnun eða samfélagsmiðlavöktum sem elur á tortryggni gagnvart viðkvæmum hópum eða fólki af erlendum uppruna. Félagslegum vanda verður að mæta með félagslegum úrræðum, skaðaminnkun og raunverulegum forvörnum. Örugg borg er borg sem greinir vandann rétt og passar upp á alla sína íbúa.

    Fylgigögn

  4. Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til felst að gera bygginguna á lóð að varanlegum grunnskóla með allt að 250 nemendum og 45 starfsmönnum og verður notkun byggingar grunnskóli í notkunarflokki 1. Auk þess er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni á lóð vegna flóttaleiða og lyftu og aðlöguðum leiksvæðum á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð, ásamt því að kvöð um gangstétt fellur út, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 29. desember 2025. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Umsögn og athugasemdir bárust. Einnig eru lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. ágúst 2026.
    Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Vísað til borgarráðs.

    Ágúst Skorri Sigurðsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK25120362

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:

    Meirihlutinn lýsir yfir ánægju með nýtt deiliskipulag og að nýr unglingaskóli í Ármúla muni vonandi komast hratt og örugglega í notkun í nálægð við það hverfi þar sem nemendur búa. Mikilvægt er að huga sérstaklega að öruggum samgöngum að skólanum, enda eru börn á þessum aldri að jafnaði sjálfstæð í ferðum sínum til og frá skóla og fara oftast gangandi eða hjólandi. Í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um öruggar og greiðar gönguleiðir fyrir skólabörn leggur meirihlutinn áherslu á að tryggðar verði örugg leið yfir götur og nauðsynlegar umferðaraðgerðir, svo sem góð lýsing og hraðahamlandi lausnir. Öryggi barna í nærumhverfi skólans er lykilatriði og mikilvæg forsenda þess að efla sjálfbærar samgöngur og heilbrigt líferni.

    Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:

    Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ármúla 28–30, sem er mikilvægt skref í að efla nærþjónustu og grunnskólaframboð fyrir vaxandi íbúðahverfi í Múlunum og Skeifunni. Sérstaklega er fagnað metnaðarfullri hönnun og skapandi nýtingu á leiksvæðum á pöllum og þökum í þéttbýli. Samhliða stuðningi við tillöguna undirstrika fulltrúar Samfylkingarinnar að afar mikilvægt er að vanda vel til verka á næstu stigum verkefnisins og taka ríkt tillit til þeirra ábendinga og athugasemda sem komið hafa fram. Algjört frumskilyrði er að aðgengi og umferðaröryggi barna sé haft í öndvegi við alla frekari hönnun og framkvæmd. Ráðast þarf í nauðsynlegar umferðaröryggisaðgerðir, hækka innkeyrslur meðfram Ármúla, bæta lýsingu og tryggja öruggar þveranir við greiningu á hættulegum gatnamótum í nærumhverfinu áður en skólahald hefst. Einnig þarf að tryggja að farið sé eftir kröfum um samfellda hjólainnviði og að lágmarki 150 hjólastæði. Þá verður að mæta réttmætum áhyggjum nágranna með því að tryggja skýran aðskilnað á gönguleiðum barna og athafna- og vöruflutningasvæðum nærliggjandi fyrirtækja. Að lokum er undirstrikað að fullnægja verði öllum kröfum Heilbrigðiseftirlitsins er varða hljóðvist, loftgæði og fallvarnir á þaksvæðum við útgáfu byggingarleyfis.

    Fylgigögn

  5. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 18. ágúst 2026. USK22120094

    Fylgigögn

  6. Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dags. 18. ágúst 2026. USK24070166

    Fylgigögn

  7. Fram fer kosning í götunafnanefnd fyrir tímabilið 2026 - 2030.
    Samþykkt að Ólöf Skaftadóttir, Óttar Kolbeinsson Proppé og Anna Dröfn Ágústsdóttir séu skipuð í götunafnanefndina. Nefndin mun starfa að næstu sveitastjórnarkosningum. USK26080082

    Fylgigögn

  8. Lögð fram umsögn um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 20. ágúst 2026. um 3. lið tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík varðandi reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar verði afnumdar og aukinn sveigjanleiki tryggður svo unnt verði að meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig.
    Frestað MSS26060100

    -    Kl. 10:30 víkja Bjarni Rúnar Ingvarsson, Guðmundur Benedikt Friðriksson og Brynjar Þór Jónasson af fundi.

Fundi slitið kl. 10:43

Guðný María Jóhannsdóttir Ari Edwald

Friðjón R. Friðjónsson Heiða Björg Hilmisdóttir

Margrét Rós Sigurjónsdóttir Magnea Gná Jóhannsdóttir

Pétur Hafliði Marteinsson

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 26. ágúst 2026