Menningarráð
Ár 2026, föstudaginn 28. águst var haldinn 2. fundur menningarráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 11:03. Viðstödd voru: Þorvaldur Davíð Kristjánsson varaformaður, Bjarni Fritzson varamaður fyrir Rúnar Frey Gíslason, Friðjón R. Friðjónsson, Líf Magneudóttir, Hlédís Maren Guðmundsdóttir og Skúli Helgason. Jafnframt Birna Hafstein varaáheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Arnfríður S Valdimarsdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á umsóknum styrkja menningarborgarinnar til ýmissa verkefna – MIR26080011.
Ingi Thor Jónsson verkefnastjóri á skrifstofu menningarborgar tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- kl. 11:08 tekur Helga Margrét Marzellíusardóttir sæti á fundinum.
-
Lögð fram tillaga stýrihóps að breytingum á reglum vegna úthlutunar styrkja og samstarfssamninga úr borgarsjóði á sviði menningarmála. MIR26060017
Samþykkt.
Menningarráð leggur fram eftirfarandi bókun:
Af hálfu menningarráðs er lagt til að gerðar verði breytingar á kynntum tillögum að reglum Menningarráðs Reykjavíkur um úthlutun styrkja og samstarfssamninga Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála er lúta að því hverjir geti þegið grasrótarstyrki. Í tillögunum sem lagðar voru fram á fundi menningarráðs er lagt til að þeim verði úthlutað til ungra listamanna en menningarráð er sammála um að gera þá breytingu að grasrótarstyrkjum skuli jafnframt úthlutað til nýliða í listum. Þannig verði gerð breyting þessu til samræmis á 4. mgr. 3. gr. og skilgreiningu þeirri sem fram kemur í 4. gr. þannig að í stað þess að aðeins sé vísað til „ungra listamanna“ verði vísað til „ungra listamanna og nýliða í listum“.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti menningarráðs, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, fagnar endurskoðun reglna um menningarstyrki og telur mikilvægt að styrkjakerfi borgarinnar sé faglegt, gagnsætt og fyrirsjáanlegt. Með reglunum er skýrð umgjörð um styrkjaflokka, faglegt mat, ábyrgð umsækjenda og eftirfylgni. Jafnframt leggur meirihlutinn áherslu á að framkvæmd reglnanna verði metin að lokinni fyrstu úthlutun, sérstaklega með tilliti til aðgengis grasrótar, skýrleika styrkjaflokka, áhrifa fjárhæðarmarka og þess hvernig faglegt mat nýtist við ákvarðanatöku ráðsins.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Ýmislegt er góðra gjalda vert í nýjum reglum um menningarstyrki. Það er t.d. vel til fundið að taka upp sérstakan flokk grasrótarstyrkja sem ætlaður er til að styðja við bakið á ungu listafólki og nýliðum í hópi listafólks. Það eykur skýrleika að tilgreina fjárhæðarmörk mismunandi styrkflokka eins og hér er lagt til en það er miður að ekki hafi verið opnað fyrir möguleika á skyndistyrkjum til að mæta þörfum listamanna fyrir stuðning utan þessa eina mánaðar þegar tekið er á móti umsóknum. Vonandi verður því fyrirkomulagi komið á við fyrsta tækifæri. Tillagan um að menningarráð velji formann faghópsins sem hefur haft það hlutverk að vinna úr umsóknum og leggja fram tillögur að styrkúthlutunum orkar hins vegar tvímælis og vekur upp spurningar um hvaða sjónarmið muni ráða för við val ráðsins á formanni. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur áherslu á að mikilvægt er að standa dyggan vörð um faglega meðferð umsókna um menningarstyrki. Það fyrirkomulag hefur verið farsælt og tryggt armslengdarfjarlægð kjörinna fulltrúa frá umsóknarferlinu.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf forseta Bandalags íslenskra listamanna dags. 17. ágúst 2026 varðandi ýmis menningartengd mál. MIR26080007.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti menningarráðs, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, þakkar formanni Bandalags íslenskra listamanna fyrir ítarlegt og málefnalegt bréf um stöðu menningarmála og áframhaldandi þróun menningarstarfs í Reykjavík. Meirihlutinn fagnar sérstaklega stuðningi BÍL við stofnun sérstaks menningarráðs Reykjavíkurborgar, sem undirstrikar vilja meirihlutans til að leggja aukna áherslu á menningarlíf borgarinnar.
Menning er mikilvægur þáttur í lífsgæðum, samfélagsþróun og aðdráttarafli Reykjavíkur. Stofnun ráðsins endurspeglar skýran vilja til að efla stefnumótun, samráð og samstarf á sviði menningarmála.
Mörg þeirra atriða sem fram koma í bréfinu eru þegar til skoðunar hjá borginni. Meirihlutinn telur eðlilegt að farið verði nánar yfir þau á árlegum fundi formanns BÍL með borgarstjóra síðar á árinu og þau rædd í samhengi við áframhaldandi stefnumótun og samstarf. Mikilvægt er að ábendingar og hugmyndir BÍL verði teknar til skipulagðrar skoðunar innan stjórnsýslu borgarinnar, í samráði við menningarlífið og eftir atvikum aðra hagaðila.
Meirihlutinn mun áfram vinna að því að styrkja umgjörð menningarmála í Reykjavík.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar þakkar Bandalagi íslenskra listamanna fyrir mikilvægt minnisblað sem dregur fram ýmis forgangsmál sem verðskuldi athygli nýs menningarráðs á komandi kjörtímabili. Þar er m.a. dregið fram og þakkað fyrir þá stefnu sem Samfylkingin mótaði á síðasta kjörtímabili að hækka jafnt og þétt heildarfjárhæð menningarstyrkja borgarinnar sem höfðu rýrnað að verðgildi sjö mögur ár þar á undan. Mikilvægt er að halda þeirri stefnu áfram á nýju kjörtímabili. Þá tekur fulltrúi Samfylkingarinnar undir að þörf er á heildstæðri vinnu við að kortleggja listnám í borginni, hvernig megi auka veg þess, bæta umgjörð og stuðning við listnám í borginni, þ.m.t. tónlistarnáms, myndlistarnáms og dansnáms.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga sérfræðihóps um úthlutun styrkja til myndríkrar miðlunar tengda sögu og menningu í Reykjavík. MIR26080008.
Samþykkt.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti menningarráðs, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, samþykkir tillögu faghóps um úthlutun styrkja til myndríkrar miðlunar árið 2026. Meirihlutinn þakkar umsækjendum fyrir fjölbreytt verkefni sem stuðla að miðlun á sögu, menningu og borgarminni Reykjavíkur. Jafnframt er áréttað mikilvægi þess að úthlutun byggist á faglegu mati og að opinber birting niðurstaðna sé skýr, nákvæm og gagnsæ.
Fylgigögn
-
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra menningarborgar dags. 25. ágúst 2026 varðandi æfingahúsnæði fyrir tónlistarfólk. MIR26080009.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti menningarráðs, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, telur brýnt að unnið verði að raunhæfum lausnum til að tryggja áframhaldandi æfinga- og starfsaðstöðu fyrir tónlistarfólk. Reykjavíkurborg þarf að sýna skýran vilja til að tryggja tónlistarfólki raunhæfa og varanlega umgjörð til æfinga og sköpunar, enda er slík aðstaða hluti af grunninnviðum fjölbreytts menningarlífs í borginni.
Meirihlutinn styður að Grensásvegur 8 verði kannaður sem mögulegur valkostur og að lagt verði mat á tæknileg, skipulagsleg, fjárhagsleg og rekstrarleg atriði. Áréttað er að slík könnun felur ekki í sér fjárhagslega eða samningslega skuldbindingu af hálfu Reykjavíkurborgar.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Samfylkingarinnar styður tillögu sviðsins um að kanna til þrautar fýsileika þess að tryggja Tónlistarþróunarmiðstöðinni og skyldri starfsemi nýtt húsnæði að Grensásvegi 8 enda hefur miðstöðin gegnt lykilhlutverki við að útvega hljómsveitum nauðsynlega æfingaaðstöðu og rými til sköpunar um langt árabil. Húsnæðið er staðsett miðsvæðis í borginni með gott aðgengi að almenningssamgöngum og myndi leysa úr brýnni þörf fyrir aðstöðu hljómsveita til æfinga og sköpunar eftir að Tónlistarmiðstöðin missti húsnæði sitt að Hólmaslóð fyrr á árinu.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga menningarráðs um úttekt á stöðu danslistar í Reykjavík.
Lagt er til að menningarráð feli menningar- og íþróttasviði að framkvæma úttekt
á stöðu danslistar í Reykjavík. Úttektin skal hafa það að markmiði að draga fram
heildstæða mynd af starfsskilyrðum danslistafólks, aðstöðu, fjármögnun,
sýningar- og æfingarýmum, aðgengi barna og ungmenna að dansi, stöðu
sjálfstæðra hópa og möguleikum Reykjavíkurborgar til að styðja betur við
uppbyggingu danslistar til framtíðar.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26080004.
Samþykkt.
Menningarráð leggur fram eftirfarandi bókun:
Menningarráð fagnar því að breið samstaða sé um að styrkja þekkingargrunn og framtíðarsýn fyrir danslist í Reykjavík. Danslist er mikilvægur hluti af menningarlífi borgarinnar og hefur sérstakar þarfir þegar kemur að rýmum, sýnileika, stuðningi og aðgengi barna og ungmenna.
Ráðið leggur áherslu á að úttektin verði skýrt afmörkuð, unnin í samráði við hagaðila og skili tillögum að raunhæfum næstu skrefum. Þar verði gerð grein fyrir áhrifum, kostnaði, fjármögnunarþörf og stjórnsýslulegri ábyrgð eftir því sem kostur er.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf leikhússtjóra Tjarnarbíós dags. 24. ágúst 2026 varðandi viðhalds- og húsnæðismál Tjarnarbíós. MIR26080010
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Menningarráðs, fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar, styður að erindi leikhússtjóra Tjarnarbíós verði vísað til umhverfis- og skipulagssviðs. Meirihlutinn leggur áherslu á að fyrst fari fram fagleg og skjót ástandskönnun vegna raka og mögulegrar myglu, ásamt mati á áhrifum á heilsu og öryggi og því hvort grípa þurfi til bráðra ráðstafana.
Að könnuninni lokinni verði unnin frumathugun á bættri nýtingu portsins, geymslum, vinnuaðstöðu, sorplausnum og aðgengi almennings. Við þá vinnu verði meðal annars tekið mið af skipulagsmálum, brunavörnum, aðgengi og kostnaði.
Meirihlutinn leggur áherslu á að menningarráð verði upplýst um niðurstöður ástandskönnunarinnar og tillögur að næstu skrefum.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:
Húsnæðismál Tjarnarbíós hafa verið lengi til meðferðar hjá menningar- og íþróttasviði og komu fram góðar tillögur í skýrslu sem menningar- og íþróttaráð lét vinna í samvinnu við menningar-og viðskiptaráðuneyti á síðasta kjörtímabili. Þar var m.a. lagt til að Tjarnarbíó fengi viðbótaraðstöðu til æfinga og sýningahalds í Iðnó og telur fulltrúi Samfylkingarinnar rétt að kanna til þrautar hvort hrinda megi þeirri tillögu í framkvæmd enda færi afar vel á því að endurreisa Iðnó sem leikhús í hjarta borgarinnar samhliða því að þar verði áfram aðstaða til tónleikahalds. Mikilvægt er að greiða sem fyrst úr bráðavanda sem tengist myglu í húsnæði við Tjarnargötu 12 og rýna vel hvort nýta megi portið við hlið Tjarnarbíós til að bæta úr brýnni þörf leikhússins fyrir meira rými og bætta aðstöðu.
Fylgigögn
-
Skrifstofustjóri menningarborgar fer yfir hvað er framundan hjá menningarborginni. MIR26080017.
Fundi slitið kl. 12:31
Þorvaldur Davíð Kristjánsson Bjarni Fritzson
Helga Margrét Marzellíusardóttir Friðjón R. Friðjónsson
Líf Magneudóttir Hlédís Maren Guðmundsdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Menningarráð 28.8.2026 - prentvæn útgáfa