Forsætisnefnd - Fundur nr. 379

Forsætisnefnd

Ár 2026, föstudaginn 4. september, var haldinn 379. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:07. Viðstödd voru Björg Magnúsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stein Olav Romslo. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 8. september 2026. Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:

    a) Umræða um breytt stjórnskipulag skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins)
    b) Umræða um nýlegar skipulagsbreytingar, hópuppsagnir og niðurlagningu hverfamiðstöðva í Reykjavík (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokks Íslands)
    c) Umræða um niðurstöður nýjustu PISA könnunarinnar (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins)
    d) Tillaga borgarfulltrúa Vinstrisins um opinn fund um nýlegar skipulagsbreytingar
    e) Umræða um breytingar á gjaldskrá veitinga og fæðis, sbr. 8. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. ágúst, 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. ágúst og 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 20. ágúst (að beiðni borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands)
    f) Tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar um víðtækar aðgerðir í forvarnarmálum
    g) Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um fjárhagslegt velferðarlíkan
    h) Kosning í innkaupa- og framkvæmdaráð
    i) Kosning í velferðarráð MSS26060088

  2. Fram fer kynning á nýju fundaumsjónarkerfi borgarstjórnar. ÞON22120023

    Nanna Rún Ásgeirsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. 

  3. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir menningarráð. MSS26080081

  4. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir leikskóla- og daggæsluráð. MSS26080081

  5. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir íþrótta- og útilífsráð. MSS26080081

  6. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir öldunga- og notendaráð fatlaðs fólks. MSS26080081

  7. Fram fer kynning á drögum að samþykkt fyrir skóla- og frístundaráð. MSS26080081 

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 20. ágúst 2026, sbr. vísun borgarráðs frá 20. ágúst 2026 á tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um stofnun öldunga- og notendaráðs fatlaðs fólks til forsætisnefndar. MSS26060081
    Frestað.

  9. Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um endurskoðun siðareglna kjörinna fulltrúa, sbr. 21. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 12. júní 2026. 
    Frestað.

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 20. ágúst 2026, þar sem tilkynnt er um tilhögun fæðingarorlofs Steins Olavs Romslo, borgarfulltrúa. MSS26080076

    Fylgigögn

  11. Fram fer kynning á skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa 2026-2030. MSS26080088

  12. Umræðu um fjárframlög til stjórnmálasamtaka 2026-2030 er frestað. MSS26060073

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Vinstrisins:

    Samþykkt er að hefja eins árs tilraunaverkefni þar sem slembival ræður því í hvaða röð mál borgarfulltrúa eru tekin fyrir á borgarstjórnarfundum. Fundargerðir ráða og nefnda haldi áfram sínum stað aftast á dagskrá. Við framkvæmd slembivals skal þess gætt að sama framboð eða flokkur lendi ekki kerfisbundið í því að mál þeirra raðist aftast á dagskrá. Kostir og gallar verði nánar til umræðu á vinnufundi forsætisnefndar og árangur tilraunaverkefnisins metinn að ári liðnu. MSS26090022

    Frestað.

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Vinstrisins ásamt greinargerð

    Samþykkt er að fara í 18 mánaða tilraunaverkefni þar sem slembival ræður sætaröðun borgarfulltrúa á borgarstjórnarfundum. Slembivalið verði eigi síðar en fyrir borgarstjórnarfund 22. september, að nýju eftir áramót og eftir sumarfrí borgarstjórnar. Árangur tilraunaverkefnisins verði metinn að 18 mánuðum liðnum. MSS26090023

    Frestað.

Fundi slitið kl. 12:02

Björg Magnúsdóttir Einar Þorsteinsson

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir

Stein Olav Romslo

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð forsætisnefndar 4.9.2026