Sundlaugar opnar lengur um helgar

Árbæjarlaug Róbert Reynisson
Árbæjarlaug

Frá og með 1. september verða sundlaugar í Reykjavík opnar til 22:00 um helgar. 

Íþrótta- og útilífsráð samþykkti á fundi sínum 26. júní að sundlaugar Reykjavíkur yrðu áfram opnar til 22.00 um helgar frá og með 1. september en upphaflega hafði lengd helgaropnun aðeins átt að gilda í sumar.

Allar laugar, utan Klébergslaug, verða því opnar til 22.00 alla daga í vetur. Í Klébergslaug höldum við hins vegar áfram að auka þjónustu með lengdum opnunartíma og höfum opið til 22.00 á sunnudögum.