Nemendur Korpuskóla tóku þátt í Skrekk 2026
Skrekkur 2026
17 nemendur skólans tóku þátt í hæfileikakeppninni Skrekkur 2026 í gærkvöld.
Þau stóðu sig með stakri prýði á stóra sviði Borgarleikhússins, skemmtu sér vel og náðu upp góðri stemningu í salnum þegar þau fluttu atriðið sitt "Korpuskóli - Rokkskólinn".
Nemendur og starfsfólk skólans og félagsmiðstöðvarinnar hafa unnið hörðum höndum að atriðinu undanfarnar vikur og hádegisæfingar hafa verið margar. Með svo flotta nemendur og starfsfólk í húsi er ekki hægt annað en að horfa björtum augum til framtíðarinnar. Því þrátt fyrir að við komumst ekki í úrslit í gær, þá munum við svo sannanlega koma sterk til leiks að ári.
Hægt er að fylgja slóðinni hér fyrir neðan og horfa á atriðið aftur í spilara RÚV.
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/skrekkur-2026-skolarnir/40037/btqab5
*Myndin sem fylgir fréttinni er skjáskot af útsendingu RÚV