Korpuskóli - Endurgerð lóðar 2026

Verkið snýr að endurgerð/breytingum á lóð Korpuskóla að Bakkastöðum 2, 112 Reykjavík vegna breyttrar notkunnar á húsnæði. Horft verður til hluta skólalóðar þar sem aðalleiksvæði skólans er staðsett en það svæði er alls u.þ.b 6700 m² að stærð en heildarstærð lóðarinnar er um 22.000 m². Korpuskóli verður að sérkennsluskóla fyrir eldri börn á grunnskólaaldri. Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð. Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir börn og fullorðna með mismunandi tegundir fötlunar, þar með talið hreyfihömlun, sjón- eða heyrnarskerðingu og þroskafrávik.
Maí - Ágúst 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Öll aðstaða á skólalóðinni verði bætt og verði aðgengileg fyrir 

Ný leiktæki og ný yfirborðsefni með fallvörn þar sem það á við og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. 

Jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki. 

Bætt verður við snjóbrædd svæði á lóð. 

Hvernig gengur?

Ágúst

Lokaspretturinn í þessum mánuði. Leiktæki eru að fara niður, girðing og hlið fara upp ásamt því að klárað verður að leggja yfirborðsefni.

Verið að klára síðustu svæði í hellulögn (upp við aðalleiksvæði), síðustu liktæki í verki sett upp, sandkassi og pergóla smíðuð á staðnum.

Öll hlið sett upp, girðingavinna heldur áfram. Hellulagt undir hjólaboga og þeir settir upp.

Verkið er á eftir áætlun og eru ný verklok áætluð um miðjan september. 14.september.

Júlí

Lokakafli í vinnu við hellulagnir hefst, aðgengi fyrir öll tryggt með því að hækka upp hellulögn við alla inn/útganga (og allar flóttaleiðir út úr húsi). Byrjað að helluleggja inná aðalleiksvæði. Byrjað á uppsetningu leiktækja og jöfnun undir gervigras. Girðingarvinna hefst. Þökulögningar hafnar.

Júní

Stofnar snjóbræðslu lagðir, deilikistu og hitakerfi komið fyrir. Vinnu við snjóbræðslu lokið síðar í mánuðinum. Byrjað á fyllingum undir öll svæði, undir hellulögð svæði og önnur svæði eins og fallvarnarsvæði (svæði með falldempandi undirlagi. enna fyrir þjónustubíla hellulögð. Núverandi kantsteinar utan um leiksvæði lækkaðir og mest allt yfirborð við leiksvæði sett í sömu hæð.  

Hver koma að verkinu?

Verktaki

Sólgarður sf. - Sölvi Steinarr Jónsson

Verkeftirlit

VSÓ Ráðgjöf

Kristján Ingi Gunnlaugsson

og

Oliver Claxton

Verkefnastjóri

Andri Þór Andrésson

Deild gatna, lóða og opinna svæða
Reykjavíkurborg
Síðast uppfært 28.08.2026