Íþrótta- og útilífsráð
Ár 2026, föstudaginn 28. ágúst var haldinn 31. fundur íþrótta- og útilífsráðs. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 14, Hofi og hófst kl. 09:01. Viðstödd voru: Bjarni Guðjónsson formaður, Björn Gíslason, Sandra Hlín Guðmundsdóttir varamaður fyrir Margréti Rós Sigurjónsdóttur, Albert Guðmundsson, Stefán Pálsson, Lárus Blöndal Sigurðsson og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Eftirtaldir embættismenn og starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Elín Hrefna Ólafsdóttir, Atli Steinn Árnason, Helga Friðriksdóttir, Fany Larota Catunta og Helga Björnsdóttir sem skrifaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer kynning á viðhaldsmálum í Laugardalslaug. MIR26080012.
Gréta Þórsdóttir Björnsson og Kristjana Ósk Birgisdóttir frá skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu hjá umhverfis- og skipulagssviði sitja fundinn undir þessum lið.
-
Fram fer kynning á viðhaldsmálum í Sundhöll Reykjavíkur. MIR26080013
Gréta Þórsdóttir Björnsson og Kristjana Ósk Birgisdóttir frá skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu hjá umhverfis- og skipulagssviði sitja fundinn undir þessum lið.
-
Fram fer kynning Ægis3 Þríþrautarfélags Reykjavíkur á Íslandsmótinu í þríþraut í Reykjavík – Reykjavíkurþraut. MIR26080006.
Þórunn Margrét Gunnarsdóttir og Árný Eik frá Ægi3 Þríþrautarfélagi Reykjavikur sitja fundinn undir þessum lið.
kl. 09:42 tekur Andrés B Andreasen sæti á fundinum.
-
Kynning á Vetrargarði og framkvæmdum á skíðasvæðum innan Reykjavíkur. MIR25100002
Frestað.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á skýrslu starfshóps um Frístundakort fyrir 67 ára og eldri. MIR26060016.
Jóhanna Garðarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að vísa skýrslunni til umsagnar öldungaráðs.
Fylgigögn
-
Fram fer umræða á aðstöðumálum íþróttafélaga. MIR26060021.
-
Lagt fram minnisblað fjármálastjóra MÍR dags. 26. ágúst 2026 vegna tekjuáætlunar sundlauga 2026.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á stöðu fjárhagsáætlunar MÍR 2026.
-
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að Íþrótta og útilífsráð feli sviðstjóra að ganga frá samningi við Íþróttafélagið Aþenu um umsjón og rekstur á íþróttahúsinu við Austurbergi, án tafar. Þá skal sviðstjóra falið að úthluta kjallara hússins til Aþenu, til félagsaðstöðu. Aþena mun innrétta félagsaðstöðuna á eigin kostnað.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26080018.
Frestað.
-
Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að menningar- og íþróttasviði verði falið að þróa heildstæða áætlun um þróun Nauthólsvíkur sem útivistar- og vatnasportssvæðis og tryggi áframhaldandi og vaxandi starfsemi Sigluness og Ylstrandar. Jafnframt verði metið með hvaða hætti ná megi fram umbótum á starfsemi og aðstöðu Sigluness.
Vinnan verði unnin með aðkomu forstöðumanna Sigluness og Ylstrandar, auk annarra sem sviðið telur viðeigandi, og taki til eftirfarandi þátta:
1. Mat á núverandi starfsemi og eftirspurn, þar á meðal fjölda þátttakenda, nýtingu, eftirspurn frá leik- og grunnskólum og hvað ræður því hversu mörgum börnum unnt er að taka á móti.
2. Mat á því hvernig lengja megi starfsárið, þar á meðal hvaða forsendur þyrftu að vera fyrir hendi svo unnt væri að taka á móti hópum frá 1. maí til 30. september og hvaða mönnun slíkt kallar á.
3. Mat á svigrúmi starfsfólks til að sinna viðhaldi búnaðar innan starfstímans og hvaða áhrif álag á háannatíma hefur á rekstraröryggi og faglegt starf.
4. Mat á ástandi og endurnýjunarþörf búnaðar, þar á meðal árabáta, kajaka, seglbáta, gæslubáts og öryggisbúnaðar, ásamt tillögum um hvernig koma megi á reglubundinni endurnýjun í stað stakra fjárfestingarátaka.
5. Greining á húsnæðisþörf starfseminnar, þar á meðal á búningsaðstöðu, salarrými, geymslum og aðstöðu fyrir utanaðkomandi hópa, og á því hvað í núverandi húsnæði takmarkar umfang starfsins.
6. Valkostir í húsnæðismálum til skemmri og lengri tíma, þar á meðal færanlegar einingar til bráðabirgða og bygging sameiginlegs vatnasportshúss í Nauthólsvík sem þjónað gæti fjölbreyttri starfsemi við sjóinn.
7. Mat á samlegð við aðra starfsemi á svæðinu, þar á meðal Ylströndina, siglingaklúbbinn Brokey og sjóbaðshópa, og hvernig sameiginleg aðstaða gæti styrkt starfsemi þeirra allra.
8. Mat á möguleikum á auknu samstarfi við skóla- og frístundasvið um nýtingu Sigluness í þágu leik- og grunnskóla borgarinnar.
9. Tillögur um forgangsröðun aðgerða, ásamt greiningu á fjárfestingarþörf og hugmyndum að fjármögnun.
Niðurstöður verði kynntar ráðinu eigi síðar en 31. október 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni. MIR26080019.
Frestað.
-
Fulltrúi Vinstrisins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Fulltrúi Vinstrisins óskar eftir því að sviðsstjóri gefi skýrslu um hvaða áhrif skyndileg niðurlagning hverfamiðstöðva Reykjavíkurborgar hafi á yfirstandandi verkefni sem miða að því að auka þátttöku barna- og ungmenna í íþróttastarfi.
MIR26080016
-
Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
a. Hvaða íþrótta- og tómstundafélög í Reykjavík reka frístundarútur eða sambærilega akstursþjónustu? Óskað er eftir yfirliti yfir félög, hverfi og þá skóla og starfsstöðvar sem þjónustan nær til.
b. Hver er aðkoma Reykjavíkurborgar að rekstri þessarar þjónustu?
c. Hver er árlegur rekstrarkostnaður þjónustunnar, sundurliðaður eftir félögum, og hvernig skiptist hann milli Reykjavíkurborgar, félaganna sjálfra og foreldra? Óskað er eftir upplýsingum um það gjald sem foreldrar greiða fyrir hvert barn.
d. Hvað ræður því hvar frístundarútur eru í boði og hvar ekki? Liggja fyrir viðmið, reglur eða stefna borgarinnar um það, eða byggist þjónustan á frumkvæði og fjárhagslegri getu einstakra félaga?
e. Hversu mörg börn nýta sér þjónustuna, sundurliðað eftir hverfum og félögum? Eru dæmi um að eftirspurn sé umfram framboð, svo sem biðlistar eða takmarkað sætaframboð?
f. Hefur verið greint í hvaða hverfum þörf fyrir frístundaakstur er mest, með hliðsjón af fjölda iðkennda, vegalengdum milli skóla og íþróttamannvirkja, staðsetningu mannvirkja og framboði almenningssamgangna?
h. Er samstarf milli íþrótta- og tómstundaráðs, skóla- og frístundasviðs og Strætó bs. um skipulag frístundaaksturs? Ef ekki, hefur verið skoðað að samræma þjónustuna á milli sviða?
-
Fulltrúi Samfylkingar leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
a. Hver er heildarfjöldi starfsfólks sem starfar við umsjón og daglegan rekstur íþróttamannvirkja borgarinnar og hversu mörg stöðugildi eru það samtals?
b. Óskað er eftir sundurliðun á fjölda starfsfólks og stöðugilda eftir einstökum mannvirkjum.
c. Óskað er eftir sundurliðun eftir starfsheitum, t.d. umsjónarmaður, húsvörður, vaktmaður, baðvörður, tæknimaður og ræstingafólk, ásamt stuttri lýsingu á því hvaða verkefni falla undir hvert starfsheiti.
d. Hversu margir eru í fullu starfi og hversu margir í hlutastarfi? Einnig er óskað eftir upplýsingum um meðalstarfshlutfall eftir starfsheitum.
e. Hvernig skiptist starfsfólk eftir ráðningarformi, þ.e. fastráðningu, tímabundinni ráðningu, tímavinnu og afleysingum?
g. Er umsjón, gæsla eða ræsting einhverra mannvirkja aðkeypt af verktökum eða þjónustuaðilum fremur en sinnt af starfsfólki borgarinnar? Ef svo er, hvaða mannvirki er um að ræða og hvaða forsendur ráða ráðningarforminu?
h. Á hvaða forsendum er fjöldi stöðugilda við hvert mannvirki ákvarðaður? Liggja fyrir viðmið um mönnun með hliðsjón af stærð mannvirkis, opnunartíma eða fjölda notenda?
i. Eru laus stöðugildi eða ómönnuð störf við mannvirkin eins og staðan er í dag? Ef svo er, hversu mörg og við hvaða mannvirki?
Fundi slitið kl. 10:42
Bjarni Guðjónsson Björn Gíslason
Sandra Hlín Guðmundsdóttir Albert Guðmundsson
Stefán Pálsson Lárus Blöndal Sigurðsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Íþrótta- og útilífsráð 28.8.2026 - prentvæn útgáfa