Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 27. ágúst var haldinn 196. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:03. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Theodór Kjartansson starfsmaður borgarlögmanns. Hallgrímur Tómasson starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar sat einnig fundinn. Fundarritari var Helena Rós Sigmarsdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi Umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25020040 dags. 21. ágúst 2026 varðandi útboð 16303 Vínlandsleið (Laxalón – Þúsöld) - Stígagerð, þar sem lagt er til við Innkaupa- og framkvæmdaráð að gengið verði að lægsta tilboði frá Jarðval sf.
Samþykkt.Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:12
Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Safa Jemai
PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 27.08.2026 - prentvæn útgáfa