Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 360

Endurskoðunarnefnd

Ár 2026, þriðjudaginn 25. ágúst var haldinn 360. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 10:03. Viðstaddir voru Einar S. Hálfdánarson og Björn Snær Atlason. Kristín Baldursdóttir boðaði forföll. Einnig sat fundinn Ingunn Ólafsdóttir, innri endurskoðandi. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á trúnaðarmerktum samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026, ásamt trúnaðarmerktri könnunarskýrslu ytri endurskoðenda, Grant Thornton endurskoðun ehf., vegna sama tímabils fyrir Orkuveituna, dags. 31. ágúst 2026.  

    Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bryndís María Leifsdóttir, Hrafnhildur Fanngeirsdóttir, Gréta Guðnadóttir, Sturla J. Jónsson, Davíð Arnar Einarsson og Bjarni Már Jóhannesson taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER26010002

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar:

    Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026, ásamt könnunarskýrslu ytri endurskoðenda fyrir sama tímabil. Endurskoðunarnefnd þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í stjórn Orkuveitunnar. 
     

Fundi slitið kl. 11:43

Einar S. Hálfdánarson Björn Snær Atlason

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd - FG 360 - 25.08.2026