Vatnsstígur - Endurnýjun frá Laugavegi að Hverfisgötu

Verkið felst í endurgerð götu og uppfærslu veitna í Vatnsstíg milli Laugavegar og Hverfisgötu. Gatan verður göngugata.
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Framkvæmdatími: Mars 2025 - Júlí 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Líklegt er að fleyga þurfi töluvert af klöpp. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt.

Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Laugavegi og Hverfisgötu. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir. Rafveita verður uppfærð að einhverju leiti.

Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og blágrænum ofanvatnslausnum. Gatan verður göngugata en aðgengi bíla að lóðum verður tryggt.

 

Hvernig gengur?

Júlí 2026

Verkið er lokið. Lokaúttektum er lokið og gatan hefur verið opnuð að fullu. Reykjavíkurborg þakkar fyrir tillitsemina.

Febrúar 2026

Verki er að ljúka en gróðursetning á plöntum verður látin bíða fram á vor.

Nóvember 2025

Nokkrar tafir hafa orðið á verkframkvæmd af ýmsum ástæðum og því hefur orðið töluverð seinkun á skiladagsetningu verksins.  Verktaki gerir ráð fyrir að ná að klára verkið fyrir lok ársins en þar sem verk hefur dregist inn í vetur sem ekki var gert ráð fyrir í upphafi þá getur veður haft töluverð áhrif á framgang verksins.

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds

Verkefnisstjóri Veitna

Auður Guðríður Hafliðadóttir

Verktaki

Stjörnugarðar

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Eftirlit fornminja

Fornleifastofnun Íslands

Verkhönnun

Hnit verkfræðistofa hf.

Landslagsarkitekt

Landslag ehf.
Last updated 28.08.2026