Bryggjuhverfi vestur
Hvað verður gert?
Árið 2023 var 100.000 m3 af burðarhæfu efni dælt á land til notkunar í farg. Jafnframt hefur verið tekið á móti burðarhæfu efni sem kemur úr framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar og einkaaðila. Tveir farghaugar eru notaðir til að flýta fyrir sigi á landinu.
Árið 2024 var haldið áfram með gerð varnargarðs sem lokar höfninni og byrjað að fylla upp í höfnina. Samhliða því voru farghaugar fluttir til þegar sigi hefur verið náð á hverju svæði fyrir sig.
Þessa dagana er verið að vinna við fergingu, niðurrif bygginga og gerð landfyllingar við höfnina. Gatnagerð í Gjúkabryggju er að hefjast.
Hvernig gengur?
September 2026
Unnið er við áframhaldandi fergingu.
Áhrifamat á vatnshlot vegna varps í hafið er í vinnslu vegna landfyllinga.
Unnið er að mengunarrannsóknum á jarðvegi og skýrslu um áhættumat fyrir svæðið.
Niðurrif á byggingum sem eiga að víkja samkvæmt deiliskipulagi er áætlað í lok árs 2026.
Maí 2026:
Unnið er við fergingu, niðurrif bygginga og gerð landfyllingar við höfnina. Gatnagerð í Gjúkabryggju er að hefjast.
Október 2023
Núna er farghaugur á H-reit sem verður fluttur á K-reit í lok október og nóvember.
Vinna við fergingu D-reits hefst 23. október samhliða dælingu efnis á land.