Íþróttastarf fyrir 60 ára og eldri
Í Reykjavík standa fjölbreyttir kostir til boða þegar kemur að því að rækta líkamann og andann. Þar eru til að mynda átta sundlaugar þar sem meðal annars má stunda sundleikfimi. Í borginni eru jafnframt fjölmörg útivistarsvæði með göngu- og hjólastígum. Þá bjóða íþróttafélög víða um borg upp á leikfimi fyrir 60+ með blöndu af þol-, styrktar-, jafnvægis- og liðleikaæfingum.
Íþróttastarf 60+
Ármann 60+
Fimleikasal Engjavegi 7
KR
Frostaskjóli 2
Fjölnir
Egilshöll
Fit í Fram
Fram, Úlfarsárbraut 126
Fylkir – Betri borgarar
Fylkisseli, Norðlingabraut 12
ÍR
Knatthús, Skógarseli 12
Víkingur
Víkinni, Traðarlandi 1
Vítamín í Val (Valur)
Valsheimili, Hlíðarenda
Þróttur
Engjavegi 7