Að gerast dagforeldri
Langar þig að gerast dagforeldri? Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir rekstrarleyfi til daggæslu í heimahúsum.
Síminn þar er 540 0040 en hægt er að senda fyrirspurn einnig á netfang þeirra; gev@gev.is
Hvernig verð ég dagforeldri?
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir rekstrarleyfi til dagforeldra. Á mínum síðum er sótt um rekstrarleyfi til daggæslu barna og hægt að sjá hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá rekstrarleyfi til daggæslu barna í heimahúsum.
Þegar umsækjandi hefur sótt um rekstrarleyfi til daggæslu barna hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála (GEV) skráir viðkomandi sig á réttindanámskeið dagforeldra hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Reykjavíkurborg greiðir helming námskeiðsgjalds, sé dagforeldrið með gilt rekstrarleyfi GEV til daggæslu barna og hafi undirritað þjónustusamning dagforeldra við Reykjavíkurborg.
Geta allir orðið dagforeldrar?
Það eru nokkur skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að fá rekstrarleyfi til daggæslu barna.
Uppfyllir þú eftirfarandi skilyrði?
Vera orðin 20 ára
Athugaðu að ef þú ert 65 ára eða eldri er leyfi aðeins veitt til eins árs í senn.
Grunnnámskeið
Hafa lokið réttindanámskeiði eða hafa menntun á sviði uppeldis-, kennslu og/eða félagsfræða.
Læknisvottorð
Skila læknisvottorði fyrir þig og aðra heimilismeðlimi
Sakavottorð
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála kallar eftir sakavottorði fyrir alla heimilismeðlimi 15 ára og eldri.
Eldvarnareftirlit
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála óskar eftir úttekt vegna eldvarna hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.
Umsögn
Skila umsögn frá síðasta vinnuveitanda eða umsögn tveggja ábyrgra aðila.
Tóbaksvarnir
Reykingar og neysla annarra vímugjafa er óheimil.
Leikrými
Leikrými innanhúss skal vera að lágmarki 3 fermetrar fyrir hvert barn
Útiaðstaða
Útiaðstaða er ekki skilyrði en æskilegt er að daggæsla hafi aðgengi að fullnægjandi útiaðstöðu.
Slysatrygging
Kaupa þarf slysatryggingu fyrir daggæslu börnin þegar daggæslan opnar.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
Starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er skilyrði, starfi tveir eða fleiri dagforeldrar saman.