Miðstöðvar
Í Reykjavík eru fjórar miðstöðvar þar sem íbúar og starfsfólk Reykjavíkurborgar getur fengið þjónustu, upplýsingar, stuðning og ráðgjöf á sviði velferðar-, skóla- og frístundamála. Jafnframt er starfrækt rafræn miðstöð, sem er fyrsta snerting notenda við þjónustuna.
Hér finnur þú upplýsingar um miðstöðvarnar, heimilisföng, símanúmer og opnunartíma þeirra.
Þann 1. september 2026 tóku gildi ný skipurit fyrir velferðarsvið og skóla- og frístundasvið.
Miðstöðvar voru lagðar niður í núverandi mynd en þær starfa þó áfram þar til í síðasta lagi 31. desember 2026 og geta íbúar áfram leitað þangað.
Eftir það verður félags- og húsnæðisþjónusta veitt að Bíldshöfða 20 og barna og fjölskylduþjónusta og skóla- og frístundaþjónusta að Borgartúni 12-14.
Nánari upplýsingar um nýtt fyrirkomulag þjónustunnar verða birtar þegar þær liggja fyrir.